Rúnar Alex Rúnarsson markvörður Nordsjælland fékk skráð á sig sjálfsmark þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Nordsjælland var 2:0 yfir í hálfleik en á 78. mínútu minnkaði SönderyskE muninn með sjálfsmarki Rúnars Alex og á lokamínútunni tókst liðinu að jafna metin. Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn á miðjunni hjá SönderjyskE.
Nordsjælland er með 20 stig í efsta sæti deildarinnar. SönderjyskE er með 11 stig í sjöunda sætinu.