Barcelona vann öruggan 3:0-sigur á Girona í 6. umferð spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Tvö markanna voru sjálfsmörk.
Aday Benítez kom Barcelona yfir með sjálfsmarki á 17. mínútu og Gorka Iraizoz bætti við öðru slíku á 48. mínútu. Luis Suárez skoraði þriðja mark Barcelona á 69. mínútu og þar við sat.
Barcelona hefur farið gífurlega vel af stað í deildinni og er með fullt hús stiga eftir sex leiki.