Samúel með sitt fyrsta mark

Samúel Kári Friðjónsson.
Samúel Kári Friðjónsson.

Samúel Friðjónsson skoraði í kvöld sitt fyrsta deildamark á ferlinum þegar Vålerenga vann Brann, 2:1, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Samúel, sem var tæpt ár frá keppni eftir að Vålerenga fékk hann frá Reading sumarið 2016, hóf að spila með Óslóarliðinu á miðju tímabili og var í kvöld í þriðja sinn í byrjunarliðinu í úrvalsdeildinni. Hann skoraði fyrra mark liðsins strax á 8. mínútu og lék þar til í uppbótartíma þegar honum var skipt af velli. Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með Brann.

Vålerenga hélt sig fyrir ofan fallsvæði deildarinnar með sigrinum en liðið er í ellefta sæti af sextán liðum með 27 stig. Brann er 2. sæti með 40 stig en er tíu stigum á eftir toppliði Rosenborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert