Albert skoraði í jafntefli

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Ljósmynd/PSV

Albert Guðmundsson skoraði fyrsta markið sitt á leiktíðinni í hollenska fótboltanum er hann kom varaliði PSV í 1:0 í 3:3-jafntefli gegn NEC í hollensku B-deildinni í dag. Mark Alberts kom af vítapunktinum eftir aðeins þrjár mínútur. 

Sóknarmaðurinn hefur verið að spila með aðal- og ungmennaliði PSV á leiktíðinni en markið var hans fyrsta á tímabilinu. Varalið PSV er í 8. sæti með níu stig eftir sex leiki í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert