Tryggvi Hrafn Haraldsson opnaði markareikning sinn í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um nýliðna helgi þegar hann skoraði síðara mark Halmstad í 2:1 sigri gegn Norrköping.
Tryggvi Hrafn gekk í raðir Halmstad frá ÍA í síðasta mánuði og þetta var fjórði leikur hans með liðinu. Hann skoraði markið á 51. mínútu en áður hafði Höskuldur Gunnlaugsson lagt upp fyrra mark liðsins.
Jón Guðni Fjóluson og Guðmundur Þórarinsson léku allan tímann fyrir Norrköping og Arnór Sigurðsson lék síðustu 20 mínúturnar.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá mark Tryggva Hrafns.