Atlético gerði jafntefli í Aserbaídsjan

Antoine Griezmann tókst ekki að skora í dag frekar en …
Antoine Griezmann tókst ekki að skora í dag frekar en öðrum. AFP

Óvænt úrslit litu dagsins ljós í fyrsta leik dagsins í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Qarabag frá Aserbaídsjan gerði þá markalaust jafntefli við stórlið Altlético Madrid á heimavelli sínum. 

Flestir bjuggust við þægilegum sigri Atlético fyrir leik, en heimamenn voru þéttir til baka og náðu að halda markinu sínu hreinu, þrátt fyrir að hafa leikið síðasta korterið manni færri eftir að Dino Ndlovu fékk að líta sitt annað gula spjald. 

Stigið var það fyrsta sem Qarabag fær í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en liðið er neðst í riðlinum. Atlético er þar fyrir ofan með tvö stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert