Tékkland er komið á toppinn í 5. riðli í undankeppni HM í knattspyrnu kvenna eftir 4:0-sigur á Slóveníu á útivelli í dag. Tékkland fór þar með upp fyrir Ísland í riðlinum vegna markatölu en Tékkar hafa leikið einum leik meira.
Petra Divisova skoraði tvívegis fyrir Tékkland í fyrri hálfleik og þær Tereza Kozárová og Lucie Vonková bættu við tveimur mörkum í síðari hálfleik og þar við sat.
Ísland og Tékkar mætast í toppslag riðilsins á þriðjudaginn kemur í Tékklandi.