Svekkjandi tap hjá Alfreð

Alfreð Finnbogason var í fremstu víglínu hjá Augsburg í dag.
Alfreð Finnbogason var í fremstu víglínu hjá Augsburg í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem tapaði á svekkjandi hátt gegn Hannover í efstu deild þýska fótboltans í knattspyrnu. Lokatölur urðu 2:1 en Augsburg var yfir allt þar til á 76. mínútu.

Þá jafnaði Niclas Fuellkrug metin en Afreð fór af velli fjórum mínútum fyrr. Fuellkrug var svo aftur á ferðinni á 89. mínútu og tryggði öflugan útisigur.

Hannover hefur eftir sigurinn í dag 15 stig í 6. sæti en Augsburg 13 í 10. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert