Sverrir tryggði Rostov stig

Sverrir Ingi Ingason skoraði mark Rostov þegar liðið gerði jafntefli …
Sverrir Ingi Ingason skoraði mark Rostov þegar liðið gerði jafntefli gegn Tosno í dag. mbl.is/Golli

Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði jöfnunarmark Rostov þegar liðið gerði 1:1-jafntefli gegn Tosno í 14. umferð rússnesku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í dag.

Sverrir Ingi sem spilaði allan leikinn í miðri vörninni fyrir Rostov skoraði mark liðsins úr vítaspyrnu á 56. mínútu leiksins. Rostov er í 11. sæti deildarinnar með 17 stig eftir þetta jafntefli. 

Þetta er fyrsta mark Sverris fyrir Rostov en hann kom til félagsins í sumar frá Granada á Spáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert