Tvö töpuð stig í fallbaráttunni

Adam Örn Arnarson í leik með íslenska U-21 árs karlalandsliðinu …
Adam Örn Arnarson í leik með íslenska U-21 árs karlalandsliðinu í knattspyrnu. Eggert Jóhannesson

Aalesund fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma þegar liðið mætti Kristiansund í 26. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í dag. Lokatölur í leiknum urðu 1:1.

Adam Örn Arnarson lék allan leikinn fyrir Aalesund, en Aron Elís Þrándarson og Daníel Leó hófu leikinn fyrir liðið en voru teknir af velli um miðbik seinni hálfleiks.

Aalesund er í 14. sæti deildarinnar með 26 stig, en liðið sem endar í því sæti tekur þátt í umspili um laust sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Sogndal er sæti ofar með 27 stig en Sogndal á leik til góða á Aalesund. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert