Neymar skoraði og fékk rautt spjald

Neymar fær að líta rauða spjaldið í kvöld.
Neymar fær að líta rauða spjaldið í kvöld. AFP

Brasilíumaðurinn Neymar leikmaður Paris SG fékk að líta rauða spjaldið þegar Parísarliðið gerði 2:2 jafntefli gegn Marseille í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Neymar skoraði fyrra mark Paris SG og jafnaði metin í 1:1. Hann fékk síðan að líta sitt annað gula spjald á 88. mínútu. Parísarliðið var þá 2:1 undir en Edison Cavani tókst að jafna metin í uppbótartíma og Paris SG en enn ósigrað.

Paris SG er með 26 stig og er fjórum stigum á undan meisturunum í Monaco.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert