Theodór Elmar áfram í umspilssæti

Theodór Elmar Bjarnason á æfingu með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu.
Theodór Elmar Bjarnason á æfingu með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Theodór Elmar Bjarnason var tekinn af velli í uppbótartíma þegar lið hans, Elazigspor, gerði 2:2-jafntefli gegn Samsunspor í níundu umferð tyrknesku B-deildarinnar í knattspyrnu karla í dag.

Alpaslan Ozturk skoraði bæði mörk Elazigspor, en Halil Ibrahim Peksen sá um markaskorunina fyrir Samsunspor. Elazigspor hefur 15 stig eftir þetta jafntefli og situr í sjötta sæti deildarinnar sem er neðsta sætið sem veitir þátttökurétt í umspili um sæti í efstu deild á næstu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert