Í bann fyrir olnbogaskot (myndskeið)

Leonardo Bonucci.
Leonardo Bonucci. AFP


Leonardo Bonucci fyrirliði AC Milan var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins.

Bonucci var rekinn af velli fyrir að gefa Aleandro Rosi leikmanni Genoa olnbogaskot í andlitið eftir 25 mínútna leik en liðin gerðu markalaust jafntefli í gær.

Í dag var svo Bonucci úrskurðaður í tveggja leikja bann. Hann missir af leik sinna manna gegn Chievo og gegn meisturunum í Juventus um næstu helgi en Bocucci yfirgaf Juventus í sumar eftir að hafa spilað með liðinu frá árinu 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert