Wiegman valin þjálfari ársins

Sarina Wiegman.
Sarina Wiegman. Ljósmynd/FIFA

Sarina Wiegman, þjálfari hollenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var val­in besti þjálf­ari árs­ins 2017 í kvennaflokki á verðlauna­kvöldi FIFA í Lund­ún­um í kvöld.

Undir stjórn Wiegman hömpuðu Hollendingar Evrópumeistaratitlinum á heimavelli í sumar eftir sigur á Dönum í úrslitaleik en þetta var fyrsti Evrópumeistaratitill Hollendinga.

Nils Nielsen þjálfari Dana og Gerard Precheur þjálfari Evrópumeistara Lyon voru einnig tilnefndir í kjörinu.

Gerard Precheur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert