Aubameyang úr agabanni og mætir Tottenham

Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang. AFP

Þýska knattspyrnuliðið Borussia Dortmund hefur aflétt agabanninu af Pierre-Emerick Aubameyang sem hann var settur í og hann er því klár í slaginn þegar Dortmund tekur á móti Tottenham í Meistaradeildinni annað kvöld.

Framherjinn öflugi frá Gabon var settur í agabann í síðustu viku og var fjarri góðu gamni á föstudaginn þegar Dortmund tapaði fyrir Stuttgart.

Dortmund verður að vinna Tottenham og vonast til þess að Real Madrid nái ekki að vinna Apoel til að eiga möguleika á að komast í 16-liða úrslitin en Tottenham hefur þegar tryggt sér farseðilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert