Góð úrslit fyrir Liverpool og Sevilla

Frá viðureign Spartak Moskva og Maribor í kvöld.
Frá viðureign Spartak Moskva og Maribor í kvöld. AFP

Úrslitin í leik Spartak Moskvu og FH-bananna í Maribor í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld reyndust vatn á myllu Liverpool og Sevilla sem mætast síðar í kvöld.

Með sigri hefði Spartak Moskva getað farið upp að hlið Liverpool í efsta sæti en liðið varð að sætta sig við 1:1 jafntefli við slóvenska liðið.

Ze Luis kom Spartak Moskva yfir á 78. mínútu en í uppbótartíma jafnaði Jasmin Mesanovic metin fyrir Maribor.

Liverpool er með 8 stig, Sevilla 7, Spartak Moskva 6 og Maribor 2.

Besiktas tryggði sér sæti í 16 liða úrslitunum með því að gera 1:1 jafntefli við Monaco.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert