Enn tapar Sigurður með Kína

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson. mbl.is/Eggert

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tapað öllum fjórum fyrstu leikjunum sem þjálfari kvennalandsliðs Kína í knattspyrnu, en liðið tapaði fyrir Japan í morgun 1:0.

Um er að ræða annan leik Kínaí úr­slita­keppni Aust­ur-Asíu­móts­ins sem fram fer í Jap­an, en Kína tapaði fyrir Norður-Kóreu á föstudag. Lokaleikurinn er svo gegn Suður-Kóreu næstkomandi föstudag í uppgjöri stigalausu þjóðanna.

Áður hafði Sigurður Ragnar tapað tveimur vináttulandsleikjum gegn Ástralíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert