Furðuleg stytta af Maradona vekur athygli

Diego Maradona lætur fara vel um sig á Indlandi.
Diego Maradona lætur fara vel um sig á Indlandi. AFP

Stytta af Diego Maradona, einum besta knattspyrnumanni sögunnar, var reist í Indlandi á dögunum. Styttan þykir nokkuð furðuleg og ekki mjög lík argentínska snillingnum. 

Maradona var samt sem áður mættur til Indlands til að bera styttuna augum og eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði frá BBC er hann hæstánægður með verkið. 

Stytta af Cristiano Ronaldo vakti mikla athygli á dögunum, þar sem hún þótti ansi ólík kappanum. Nú er spurning hvort þessi stytta hafi toppað styttu Portúgalans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert