Brassarnir í úrslit eftir framlengingu

Éverton fagnar sigurmarki leiksins.
Éverton fagnar sigurmarki leiksins. AFP

Brasilíska liðið Grêmio er komið í úrslit heimsbikars félagsliða í fótbolta eftir 1:0-sigur á Pachuca frá Mexíkó í undanúrslitum í kvöld. Leikið er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 

Eftir markalausan leik í venjulegum leiktíma var framlengt og í framlengingunni skoraði Éverton sigurmarkið á 95. mínútu. Victor Guzmán fékk að líta rauða spjaldið í liði Pachuca á 110. mínútu og tíu leikmenn Mexíkóanna tókst ekki að jafna.

Grêmio mætir annað hvort Evrópumeisturum Real Madrid eða heimamönnum Al-Jazira í úrslitaleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert