Kári skoraði í öruggum sigri

Kári Árnason skoraði í kvöld.
Kári Árnason skoraði í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kári Árnason skoraði sitt annað deildarmark á leiktíðinni í skosku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Hann lék allan leikinn fyrir Aberdeen og skoraði annað mark liðsins í öruggum 3:0-sigri á St. Johnstone á útivelli. 

Kári lék á miðjunni í leiknum og stóð sig vel. Aberdeen er í 3. sæti deildarinnar með 36 stig, eins og Rangers sem er í sætinu fyrir ofan. Celtic er í toppsæti deildarinnar með 41 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert