Ronaldo setti met í gær

Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu í gær.
Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu í gær. AFP

Cristiano Ronaldo, leikmaður Evrópumeistara Real Madrid, setti met í gær þegar hann skoraði annað marka liðsins í 2:1-sigri á Al-Jazira frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í undanúrslitum heimsbikars félagsliða í knattspyrnu.

Þetta var sjötta mark Ronaldo í þessari keppni og hefur enginn leikmaður skorað jafnmörg. Hann fór fram úr Lionel Messi, Luis Suárez og Cesar Delgado sem allir hafa skorað fimm.

Um er að ræða keppni á milli álfumeistara félagsliða auk deildarmeistara gestgjafanna, en síðustu þrjú ár hefur verið leikið í furstadæmunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert