Real Madrid bætti í bikarskápinn

Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark Real Madrid
Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark Real Madrid AFP

Cristiano Ronaldo tryggði Real Madrid 1:0-sigur þegar liðið mætti Gremio í úrslitaleik í heimsbikar félagsliða sem fram fór á Zayed Sport City Stadium í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag.

Ronaldo hefur skorað flest mörk allra í sögu heimsbikars félagsliða eða sjö talsins. Næstir á eftir honum koma Lionel Messi og Luis Suárez, leikmenn Barcelona, og César Delgado, leikmaður Rosario Central. 

Þetta er í þriðja skipti sem Real Madrid vinnur heimsbikar félagsliða eftir að keppnin var sett í núverandi form. Real Madrid hafði sömuleiðis unnið forvera keppninnar þrívegis. Real Madrid hefur því lyft heimsbikar félagsliða alls sex sinnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert