Jafnaði met Maradona

Marek Hamsík í leiknum við Torino.
Marek Hamsík í leiknum við Torino. AFP

Markamet Diego Maradona fyrir ítalska knattspyrnuliðið Napoli var loksins jafnað í gær. Þar var að verki Slóvakinn Marek Hamsík.

Hamsík skoraði sitt 115. mark fyrir félagið þegar Napoli vann Torino, 3:1, á útivelli og komst á topp ítölsku A-deildarinnar. Napoli er með 42 stig en Inter Mílanó, sem tapaði 1:3 heima fyrir Emil Hallfreðssyni og félögum í Udinese, er með 40 stig. 

Argentínumaðurinn Maradona, sem margir telja besta knattspyrnumann sögunnar, skoraði 115 mörk fyrir Napoli á árunum 1984 til 1991, í 259 leikjum. Hamsik hefur leikið með Napoli frá 2007 og þurfti 477 leiki til að ná þessum markafjölda.

Diego Maradona.
Diego Maradona. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert