Torres var hetja Atlético Madrid

Leikmenn Atlético Madrid fagna marki Torres í gærkvöld.
Leikmenn Atlético Madrid fagna marki Torres í gærkvöld. AFP

Fernando Torres var hetja Atlético Madrid þegar liðið hafði betur gegn Alavés, 1:0, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöld.

Torres kom inn á sem varamaður á 69. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði hann sigurmarkið í leiknum. Með sigrinum skaust Atlético Madrid upp í annað sæti deildarinnar. Liðið er með 36 stig og þremur stigum á eftir Barcelona sem tekur á móti Deportivo La Coruna í kvöld.

Valencia er í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir Atlético Madrid en Valencia tapaði fyrir Eibar í gær, 2:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert