Aubameyang framlengir við Dortmund

Pierre-Emerick Aubameyang fagnar með félögum sínum eftir sigurinn gegn Hoffenheim …
Pierre-Emerick Aubameyang fagnar með félögum sínum eftir sigurinn gegn Hoffenheim um helgina. AFP

Pierre-Emerick Aubameyang framherji þýska knattspyrnuliðsins Borussis Dortmund er búinn að samþykkja að framlengja samning sinn við þýska liðið að því er þýskir fjölmiðlar greina frá.

Gabonmaðurinn hefur ákveðið að skrifa undir samning við Dortmund sem gildir til ársins 2021 en hann hefur af og til verið orðaður við lið á Englandi og Real Madrid.

Aubameyang varð markakóngur þýsku Bundesligunnar í fyrra með 31 mark og hann er í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar á þessu tímabili.

Hann hefur skorað 13 mörk en Robert Lewnadowski framherji meistaranna í Bayern München er markahæstur með 15 mörk. Alfreð Finnbogason er þriðji á markalistanum með 11 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert