Tilboði hafnað í Jón Guðna

Jón Guðni Fjóluson.
Jón Guðni Fjóluson. Ljósmynd/Heimasíða Norrköping

Sænska blaðið Expressen segir að Norrköping hafi hafnað tilboði frá belgísku félagi í Jón Guðna Fjóluson, landsliðsmann í knattspyrnu.

Ekki kemur fram frá hvaða belgíska liðið tilboðið kom í Jón Guðna en forráðamenn Norrköping vilja ekki selja miðvörðinn í janúar.

Belgíska liðið hefur ekki gefist upp og hyggst leggja fram nýtt tilboð í Jón Guðna sem átti afar góðu gengi að fagna með Norrköping á síðustu leiktíð og var einn af bestu varnarmönnunum í sænsku úrvalsdeildinni að mati sparkspekinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert