Albert Guðmundsson, sem skoraði þrennu fyrir íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu í 4:1-sigri á Indónesíu, er eftirsóttur en hann hefur fengið fá tækifæri með aðalliði PSV í Hollandi þar sem hann er samningsbundinn.
Albert hefur raðað inn mörkunum fyrir varalið PSV og frammistaðan með íslenska landsliðinu hefur komið honum enn frekar á kortið. Hollenski miðillinn ED greinir frá því að félög í Hollandi og annars staðar í Evrópu hafi sýnt honum áhuga á meðan PSV hafi ekki boðið honum nýjan samning.
Albert á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við PSV og gerir sterkt tilkall til áframhaldandi sætis í íslenska landsliðinu nú þegar styttist í heimsmeistaramótið í Rússlandi.