Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson skrifaði nú undir kvöld undir samning við rússneska knattspyrnufélagið Rostov og hann gildir út leiktíðina.
„Mér líst mjög vel á þetta. Móttökurnar sem ég hef fengið frá öllum og sérstaklega forseta Rostov hafa verið ótrúlega góðar,“ sagði Ragnar í samtali við mbl.is.
Ragnar hefur þar með vistaskipti frá rússneska liðinu Rubin Kazan sem hann hefur spilað með frá því síðastliðið vor þar sem hann var á lánssamningi frá enska B-deildarliðinu Fulham. Ekki er um lánssamning að ræða hjá Rostov en Fulham hefur staðfest að Ragnar sé laus allra mála hjá félaginu.
„Það er frábært að hafa Sverri og Bjössa hérna líka,“ segir Ragnar en Sverrir Ingi Ingason gekk í raðir Rostov fyrir tímabilið frá spænska liðinu Granada og Björn Bergmann Sigurðarson samdi við rússneska liðið á dögunum, sem keypti hann frá norska úrvalsdeildarliðinu Molde.
Spurður hvort það komi til greina að semja við Rostov til frambúðar eftir að tímabilinu lýkur sagði Ragnar:
„Það er ekki hægt svara því núna en miðað við fyrstu kynnin af félaginu þá býst ég við því að vera opinn fyrir því eftir tímabilið en ég mun bara að skoða þessi mál þegar að því kemur. Fyrst og fremst ætla ég að koma mér í toppstand og reyna að hjálpa liðinu við að rjúka upp töfluna,“ sagði Ragnar.
Rostov er í 10. sæti af 16 liðum í rússnesku úrvalsdeildinni þegar leiknar hafa verið 20 umferðir af 30. Tæplega þriggja mánaða vetrarhlé er gert á deildinni sem hefst ekki aftur fyrr en í byrjun mars.
Hér fyrir neðan má sjá myndskeið frá RostovTV af komu Ragnars til Antalya í Tyrklandi þar sem liðið er í æfingabúðum og viðtal við hann.
🔥
— Football Club Rostov (@rostovfc) January 18, 2018
Рагнар уже с нами!
Смотрим видео от ROSTOV TV про нашего новичка! https://t.co/OIZlUGN53a
⚡️🇮🇸
— Football Club Rostov (@rostovfc) January 18, 2018
ФК «Ростов» заключил трансферное соглашение с английским «Фулхэмом» о переходе защитника сборной Исландии Рагнара Сигурдссона в наш клуб!
31-летний футболист подписал полноценный контракт с «Ростовом». pic.twitter.com/zcCfrmI2kt