Goretzka búinn að semja við Bayern

Leon Goretzka í leik með Schalke.
Leon Goretzka í leik með Schalke. AFP

Leon Goretzka, landsliðsmaður þýskalands í knattspyrnu er búinn að semja við Bayern München og mun hann ganga í raðir Þýskalandsmeistaranna frá Schalke næsta sumar. Samningurinn gildir til 2022.  

Goretzka hefur verið orðaður við Liverpool og Manchester United á Englandi, en hann verður samningslaus næsta sumar og fær Bayern miðjumanninn því án greiðslu. 

Hann á að baki 12 landsleiki fyrir A-landslið Þýskalands og í þeim hefur hann skorað 12 mörk. Hann gekk í raðir Schalke frá Bochum árið 2013 og hefur á þeim tíma leikið 130 leiki og skorað 19 mörk.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert