Elmar og félagar nálgast umspilssæti

Theodór Elmar á ferðinni með Elazigspor.
Theodór Elmar á ferðinni með Elazigspor. Ljósmynd/Twitter-síða Elazigspor

Theodór Elmar Bjarnason og liðsfélagar hans í Elazigspor unnu góðan 2:1-heimasigur á Giresunspor á heimavelli sínum í tyrknesku B-deildinni í fótbolta í dag. Theodór spilaði allan leikinn á miðjunni hjá Elazigspor.

Eftir sigurinn er liðið aðeins tveimur stigum frá 6. sætinu, en það gefur þátttökurétt í umspilinu um sæti í efstu deild á næsta tímabili. Eftir skelfilegt gengi undir lok síðasta árs hafa Elmar og félagar rétt úr kútnum og ekki tapað síðustu fimm leikjum sínum og af þeim unnið þrjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert