Theódór Elmar Bjarnason og félagar hans hjá Elazigspor halda enn í vonina um að tryggja sér sæti í umspili um laust sæti í tyrknesku efstu deildinni í knattspyrnu karla. Theódór Elmar lék allan leikinn í 2:1-sigri liðsins gegn Giresunspor í 23. umferð næstefstu deildar í gærkvöldi.
Elazigspor er eins og sakir standa í sjöunda sæti deildarinnar með 34 stig, en liðið er tveimur stigum frá umspilssæti. Theódór Elmar hefur verið í lykilhlutverki í liði Elazigsport á yfirstandandi leiktíð, en hann hefur verið í byrjunarliði í öllum 23 deildarleikjum liðsins.
Hér að neðan má sjá myndskeið með helstu tilþrifum Theódórs Elmars á leiktíðinni.