Fyrsti sigur Heimis í Færeyjum (myndskeið)

Heimir Guðjónsson ásamt Teiti Jacobsen sem gekk í raðir HB …
Heimir Guðjónsson ásamt Teiti Jacobsen sem gekk í raðir HB á dögunum. Ljósmynd/HB

Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans í HB fögnuðu 2:1 sigri gegn Víkingi í færeysku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina.

HB tapaði fyrir KÍ, 3:0, á heimavelli í 1. umferðinni en í 2. umferðinni á laugardaginn hafði HB betur gegn meisturunum á heimavelli sínum en undir stjórn Heimis slógu FH-ingar lið Víkings út í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

Brynjar Hlöðversson lék fimm síðustu mínúturnar fyrir HB en hann missti af leiknum í fyrstu umferðinni vegna meiðsla. Brynjar gekk í raðir HB í vetur frá Leikni Breiðholti

Sjá mörkin úr leiknum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert