Sagður vera búinn að semja

Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski. AFP

Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Spánar- og Evrópumeistarar Real Madrid séu búnir að ná samkomulagi við pólska framherjann Robert Lewandowski í öllum meginatriðum og hann muni ganga í raðir félagsins frá Bayern München í sumar.

Að því er fram kemur í spænska blaðinu Mundo Deportivo hefur Lewandowski samþykkt að gera tveggja ára samning við Madridarliðið en Real Madrid á eftir að semja við forráðamenn Bayern München um kaupverðið en pólski framherjinn er samningsbundinn þýska stórliðinu til ársins 2021.

Lewandowski, sem er 29 ára gamall, á að leysa Frakkann Karim Benzema af hólmi en hann hefur aðeins skorað 7 mörk í 31 leik með Real Madrid á tímabilinu á meðan Lewandowski hefur skorað 32 mörk í öllum leikjum með Bayern á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert