Verður ekki seldur í sumar

Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski. AFP

Þýska meistaraliðið Bayern München útilokar að selja pólska framherjann Robert Lewandowski í sumar en spænskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Real Madrid hafði náð samkomulagi við Lewandowski í öllum meginatriðum.

Pólski markaskorarinn er samningsbundinn Bayern til ársins 2021 en frá því hann kom til liðsins frá Borussia Dortmund árið 2014 hefur hann skorað 100 mörk í 121 leik í þýsku Bundesligunni og þá hefur hann skorað 51 mark í 91 leik með pólska landsliðinu.

Á þessu tímabili hefur Lewandowski skorað 31 mark í 36 leikjum með Bayern München í öllum keppnum. Real Madrid vill fá hann til að leysa Frakkann Karim Benzema af hólmi en að því er fram kom í þýska fótboltablaðinu Kicker í gærkvöld kemur ekki til greina að hálfu forráðamanna Bæjara að selja Pólverjann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert