Nýjasti FH-ingurinn skoraði fyrir Bermúda

Zeiko Lewis.
Zeiko Lewis. Ljósmynd/FH

Zeiko Lewis, nýjasti liðsmaður karlaliðs FH í knattspyrnu, skoraði fyrra mark Bermúda í 3:2 sigri gegn Antigua og Barbuda þegar þjóðirnar úr karabíska hafinu áttust við í vináttuleik í nótt.

Lewis, sem er 22 ára gamall, gerði samning við FH í vikunni sem gildir út tímabilið en hann hefur verið til reynslu hjá Hafnarfjarðarliðinu síðustu vikurnar.

Þetta var 15. leikur Lewis með landsliðið Bermúda og hefur hann skorað 5 mörk í þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert