Zlatan Ibrahimovic er orðinn leikmaður LA Galaxy í bandaríska fótboltanum. Svíinn losaði sig undan samningi hjá Manchester United í gær, til að ganga frá samningi við Galaxy.
„Ég skrifaði undir hjá Galaxy því ég er viss um að það sé rétta skrefið á þessu stigi. Ég hef mikið fram að færa og get hjálpað. Þetta er besta liðið í Bandaríkjunum,“ sagði Zlatan.
Tímabilið í Bandaríkjunum er nýhafið og gæti hann spilað sinn fyrsta leik í grannaslag LA Galaxy og LA FC 31. mars næstkomandi. Galaxy hefur unnið einn og tapað einum leik í fyrstu tveimur umferðum deildarinnar.
#zLAtan pic.twitter.com/S73CpaNMaP
— LA Galaxy (@LAGalaxy) March 23, 2018