Albert mjög áberandi í sigri

Albert Guðmundsson var áberandi í dag.
Albert Guðmundsson var áberandi í dag.

Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var áberandi fyrir varalið PSV í 4:2-heimasigri á Dordrecht í hollensku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Albert lék allan leikinn og lagði upp mark en brenndi einnig af vítaspyrnu.

Albert brenndi af spyrnunni á 19 mínútu en bætti upp fyrir það sem að leggja upp þriðja mark PSV, sem kom liðinu í 3:0. Varalið PSV er í 5. sæti deildarinnar með 64 stig. 

Viktor Karl Einarsson var í byrjunarliði varaliðs AZ sem tapaði fyrir NEC, 2:0. Viktor fór af velli á 65. mínútu. Varalið AZ er í 13. sæti með 45 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert