Alfreð í liði vikunnar í Þýskalandi

Alfreð skorar annað mark Augsburg.
Alfreð skorar annað mark Augsburg. Ljósmynd/@FCAugsburg

Alfreð Finnbogason sneri aftur í lið Augsburg með stæl um helgina, en hann spilaði þá sinn fyrsta leik eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni í nokkurn tíma. Augsburg hafði þá betur gegn Mainz, 2:0, í efstu deild Þýskalands í fótbolta. 

Alfreð skoraði eitt mark og lagði upp annað og var maður leiksins. Frammistaðan skilaði honum sæti í liði vikunnar að mati forráðamanna deildarinnar, eins og sjá mér hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert