Heldur Ronaldo uppteknum hætti?

Cristiano Ronaldo á æfingu með félögum sínum í München í …
Cristiano Ronaldo á æfingu með félögum sínum í München í gær. AFP

Cristiano Ronaldo hefur skorað í öllum tíu leikjum Real Madrid í Meistaradeildinni á þessari leiktíð en Evrópumeistararnir sækja Bayern München heim í kvöld í fyrri rimmu liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Ronaldo hefur skorað 42 mörk í öllum keppnum með Real Madrid á tímabilinu og honum hefur gengið vel að koma tuðrunni í netmöskvana hjá þýsku meisturunum.

Ronaldo hefur skorað níu mörk á móti Bayern München í Meistaradeildinni en þegar liðin áttust við í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð skoraði hann 5 mörk í leikjunum tveimur en Evrópumeistararnir unnu einvígið samanlagt, 6:3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert