Bendtner tryggði Rosenborg bikar

Nicklas Bendtner skoraði sigurmark Rosenborg.
Nicklas Bendtner skoraði sigurmark Rosenborg. AFP

Rosenborg varð í dag meistari meistaranna í norsku knattspyrnunni í karlaflokki með því að sigra Lillestrøm, 1:0, í hinum árlega meistaraleik en honum var frestað í síðasta mánuði vegna vallarskilyrða.

Daninn Niclas Bendtner skoraði sigurmark Rosenborg sem varð norskur meistari á síðasta tímabili en Lillestrøm varð bikarmeistari. Leikið var á Åråsen, heimavelli Lillestrøm.

Matthías Vilhjálmsson er ekki byrjaður að spila með Rosenborg eftir að hafa slitið krossband í hné í ágúst 2017 en reiknað er með að hann verði kominn af stað fyrir mitt sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert