HM í hættu hjá Boateng

Jerome Boateng er hér studdur af leikvelli í gærkvöld.
Jerome Boateng er hér studdur af leikvelli í gærkvöld. AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Jerome Boateng leikmaður þýska meistaraliðsins Bayern München á það á hættu að missa af HM í Rússlandi í sumar.

Boateng varð fyrir meiðslum í læri í tapi Bayern München gegn Real Madrid þegar liðin áttust við í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöld.

Ljóst er að Boateng spilar ekki meira með Bayern á leiktíðinni og framundan er kapphlaup við tímann hjá honum að ná sér góðum af meiðslunum í tæka tíð fyrir HM.

Boateng, sem er 29 ára gamall, á að baki 70 leiki með þýska landsliðinu og varð heimsmeistari með því í Brasilíu fyrir fjórum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert