Ótrúleg stemning í miðborg Frankfurt

Niko Kovac, knattspyrnustjóri Frankfurt fagnar með stuðningsmönnum.
Niko Kovac, knattspyrnustjóri Frankfurt fagnar með stuðningsmönnum. AFP

Frankfurt varð óvænt þýskur meistari í fótbolta með 3:1-sigri á Bayern München í úrslitaleik í gærkvöldi. Bikartitilinn er sá fyrsti í 20 ár hjá félaginu og var því sannarlega tilefni fyrir stuðningsmenn að fagna.

Þúsundir stuðningsmanna voru mættir í miðborg Frankfurt til að taka á móti leikmönnum og úr varð mögnuð stemning. Hér að neðan má sjá myndband af fagnaðarlátunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert