Hólmar Örn í Evrópudeildina

Hólmar Örn Eyjólfsson spilar í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Hólmar Örn Eyjólfsson spilar í Evrópukeppni á næstu leiktíð. AFP

Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar í Levski Sofia tryggðu sér í dag sæti í Evrópudeildinni í fótbolta á næstu leiktíð með 4:1-sigri á Cherno Varna í umspili búlgörsku deildarinnar.

Hólmar hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Levski á leiktíðinni og spilaði hann allan leikinn í hjarta varnarinnar. Levski hafnaði í 3. sæti búlgörsku deildarinnar og fór alla leið í bikarúrslit, þar sem liðið mátti þola tap í vítakeppni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert