Klikkuð innan vallar og utan

Sara Björk Gunnarsdóttir með liðsfélögum sínum á lokaæfingu Wolfsburg fyrir …
Sara Björk Gunnarsdóttir með liðsfélögum sínum á lokaæfingu Wolfsburg fyrir úrslitaleikinn. AFP

„Hún er klikkuð, innan sem utan vallar,“ sagði sænska landsliðskonan Nilla Fischer þegar Morgunblaðið spurði hana álits á Söru Björk Gunnarsdóttur. Þær Sara eru liðsfélagar í Wolfsburg og hluti af „Norðurlandahópnum“ í liðinu sem ver miklum tíma saman. Báðar verða þær í sviðsljósinu í dag kl. 16 þegar Wolfsburg mætir Evrópumeisturum síðustu tveggja ára, Lyon, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Sara og Fischer hafa leikið flestar mínútur allra útileikmanna Wolfsburg á leiktíðinni. Sara aðeins fleiri, í sínu hlutverki sem afturliggjandi miðjumaður fyrir framan Fischer sem ber fyrirliðabandið í miðri vörn Wolfsburg.

Rætt er við Fischer  og fleiri samherja Söru í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun. Sindri Sverrisson blaðamaður er í Kiev og fylgist með úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu kvenna sem fram fer í dag og fjallar um leikinn á mbl.is og í Morgunblaðinu. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert