Hugsar hann bara um hárgreiðsluna?

Paul Pogba mætir til leiks í æfingabúðir franska landsliðsins.
Paul Pogba mætir til leiks í æfingabúðir franska landsliðsins. AFP

Åge Hareide landsliðsþjálfari Dana vandaði ekki franska landsliðinu kveðjurnar en Danir mæta Frökkum í úrslitakeppni HM í Rússlandi í næsta mánuði.

„Ég hef enga trú á þessu franska liðinu. Það er ekkert sérstakt. Það hefur engan leiðtoga eins og Zinedine Zidane,“ sagði Norðmaðurinn í viðtali við danska blaði Jylland Posten en hann hefur stýrt danska landsliðinu síðustu þrjú árin.

Hareide hefur ekki mikið álit á miðjumanninum Paul Pogba sem leikur með Manchester United.

„Hann spilaði á móti Manchester City með hárið blátt og hvítt og kannski verður hann með rautt og hvítt hárið í leiknum á móti okkar. Hamingjan góða. Hugsar hann bara um hárgreiðsluna?,“ sagði Hareide en Danir eru í riðli með Frökkum, Perúmönnum og Áströlum á HM.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert