Enn vinna Heimir og félagar

Heimir Guðjónsson
Heimir Guðjónsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í HB frá Þórshöfn unnu sinn 11. leik í röð í dag í öllum keppnum, og þann níunda í röð í deildinni, er liðið vann AB í efstu deild Færeyja í dag.

Brynjar Hlöðversson lék allan leikin fyrir HB í dag sem fyrr.

HB hefur 31 stig eftir 12 leiki í 1. sæti Betri deildarinnar eins og efsta deildin í karlaboltanum í Færeyjum heitir. KÍ er í 2. sæti með 26 stig en B36 hefur 25 stig eftir 11 umferðir.

Eftir 3:0 tap í fyrstu umferð deildarinnar gegn KÍ þann 11. mars hefur HB ekki tapað leik og raunar unnið 12 leiki af 13 en liðið gerði jafnefli gegn B36 hinn 2. apríl. Síðan þá hefur liðið unnið 11 leiki í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert