Ronaldo sér ekki eftir neinu

Christiano Ronaldo fagnar í gær.
Christiano Ronaldo fagnar í gær. AFP

Cristiano Ronaldo sér ekki eftir ummælum sínum eftir sigurinn á Liverpool í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gær. Ronaldo gaf það í skyn að hann gæti yfirgefið Real Madrid á næstunni.

Ronaldo sagði þá að framtíð sín kæmi í ljós á næstu dögum. Portúgalinn talaði um tíma sinn hjá Real Madrid í þátíð. „Það var fallegt að vera hjá Real Madrid,“ sagði hann í samtali við BeinSports.

„Kannski var þetta ekki rétti tíminn fyrir svona ummæli en ég var hreinskilinn og sé ekki eftir þeim. Ég mun segja meira eftir viku, stuðningsmennirnir eiga það skilið,“ bætti hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert