Höskuldur reyndist hetja Halmstad

Höskuldur skoraði sigurmarkið í dag.
Höskuldur skoraði sigurmarkið í dag. Ljósmynd/Halmstad

Hösk­uld­ur Gunn­laugs­son reynd­ist hetja sinna manna í Halmstad í sænsku B-deild­inni í dag er hann skoraði sig­ur­mark leiks­ins gegn Eskilstuna í toppbaráttunni. Leiknum lauk 2:1.

Gestirnir í Eskilstuna komust yfir snemma leiks með marki Zuran Tsiskaridze áður en Jonathan Svedberg minnkaði muninn fyrir hálfleik.

Höskuldur skoraði svo eina mark síðari hálfleiksins og jafnframt sigurmarkið á 60. mínútu. Tryggvi Hrafn Haraldsson kom inn á í hálfleik og lék því 45 mínútur fyrir Halmstad.

Með sigrinum hafa liðin sætaskipti og er Halmstad nú í öðru sæti með 27 stig, þremur stigum frá toppliði Falkenberg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert