Mihajlovic tekur við Sporting

Sinisa Mihajlovic að taka við Sporting Lisbon.
Sinisa Mihajlovic að taka við Sporting Lisbon. AFP

Sinisa Mihajlovic hefur verið ráðinn þjálfari portúgalska knattspyrnuliðsins Sporting Lissabon. Hann tekur við af Jorge Jesus sem fór frá félaginu 6. júní. 

Mihajlovic hefur áður þjálfað sex lið á Ítalíu, þar á meðal AC Milan, Inter Milan og Fiorentina. Hann hefur einnig þjálfað serbneska landsliðið.

Mihajlovic bíður ærið verkefni. Margir af bestu leikmönnum liðsins hafa rift samningi sínum eftir að hafa orðið fyrir árás 50 æstra áhorfenda sem réðust að leikmönnum og þjálfurum þegar liðinu mistókst að enda í öðru sæti portúgölsku deildarinnar sem tryggir þátttöku í Meistaradeildinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert