Milos byrjar á sigri í Svíþjóð

Milos Milojevic tók við sem aðalþjálfari Mjällby á sunnudaginn síðasta.
Milos Milojevic tók við sem aðalþjálfari Mjällby á sunnudaginn síðasta. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Milos Milojevic byrjaði á sigri í sínum fyrsta leik með Mjällby í sænsku C-deildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið vann 4:0 sigur á Lund. Milos tók við sem aðalþjálfari liðsins síðasta sunnudag þegar Jonas Andersson hætti óvænt með liðið. 

Milos var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins í nóvember á síðasta ári og hefur gegnt því starfi hjá félaginu undanfarna mánuði. Mjällby hefur farið vel af stað í sænsku C-deildinni á þessari leiktíð en liðið situr á toppi suðurdeildarinnar með 27 stig eftir fyrstu þrettán umferðirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert